sunnudagur, febrúar 27, 2005

Þetta er nú búinn að vera meiri happy happy joy joy dagurinn í dag. (Ekki vegna þess að Joy, sem elskar rauða og bláa liti en hatar nagla, er að flytja í íbúðina hennar Völu). Ástæður fyrir því að þetta er besti dagur síðan að ég missti sveindóminn með Ásgeiri skólastjóranum mínum í grunnskóla, eru eftirfarandi:

  • Ég fékk að sofa út í fyrsta sinn í mmmmjjjjöööögggg langan tíma
  • Ég svaf nakinn í ullarsokkum
  • Ég fékk að hitta aftur vin minn vaktstjórann í Sorpu með fallega síða hárið og hárbeitta bitrahúmorshugmyndaflugið, sem reynir alltaf við hana Völu í hvert sinn sem við komum
  • Ég fór í Bláa lónið
  • Ég borðaði á American Style
  • Ég pissaði ekki á mig þegar Vala kittlaði mig

En nú er þessi góði dagur snart á enda kominn og um að gera að taka fram ullarsokkana.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

þú ert svo kátur þessa dagana að ég sé fyrir mér að það stafi af þér bleikur ljómi og þyrlist af þér glimmer í hverju skrefi :Þ

KT

9:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þú ert svo kátur þessa dagana að ég sé fyrir mér að það stafi af þér bleikur ljómi og þyrlist af þér glimmer í hverju skrefi :Þ

KT

9:32 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home