miðvikudagur, október 19, 2005

Ég fer í fríið

ÉG ER KOMINN Í FRÍ, þangað til 15. des. Ég hef sjaldan fundið jafn mikinn sæluhroll og þegar ég gekk út úr skólanum eftir síðasta fundinn. Ég kom upp á spítala faðmaði, prinsessuna, settist í stól og andvarpaði. Jeg skal pa ferie. Það er nú með eindæmum hvað það tekur langann tíma að koma á þessari nettengingu. Ég hringdi fyrir mörgum vikum í Rafvirkjan sem ætlaði að koma og gera við tenginguna, en enginn lét sjá sig. Ég hafði svo samband í fyrradag og þá höfðu þeir bara gleymt mér. Þeir lofuðu að koma sem fyrst en ég heyrði ekkert í þeim í dag. Vonandi koma þeir bara sem fyrst. Er farið að dauðlanga til að geta náð mér í nýja tónlist og nýja þætti. Jæja best að fara njóta þess að vera kominn í frí og skella sér í ræktina.

Itte rasshai.

2 Comments:

Blogger IrisD said...

Jæja Óli..kíki við hér og á síðu hetjunnar þinnar annað slagið...njóttu þess að vera kominn í frí!!
Skil þig vel að slaka á í náminu...tíminn með Matthildi er dýrmætur og kemur ekki aftur...Kennó fer hvergi...þótt þú verðir kannski ekki með svona frábæru liði eins og okkur....heheheh!!

Bestu kveður og njóttu :)

Íris Dögg (KHÍ)

11:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hafðu það sem allra best í fríinu og njóttu samverustundanna með fjölskyldunni.

Ha det bra
Helga Dröfn og Lalli

8:06 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home