laugardagur, október 06, 2007

Nýjar myndir

Þau mæðgin, Valgerður og Ólafsson, eru vonandi á leiðinni heim af spítalanum á morgun. Reyndar er sá litli ennþá nokkuð rokkandi í hita. Ég setti inn nokkrar nýjar myndir inn á myndasíðuna hér til hliðar. Sjúkrastofan sem þau eru inn á er eiginlega eins og hótelherbergi. Sérbaðherbergi, sérsvalir, stórt sjónvarp og frítt fæði. En ég held samt að þau væru frekar til í að vera heima á Hagamelnum.

Hér er fjölskyldan mínus móðir í rólegheitum inn á sjúkrastofunni.

Við Matthildur erum loksins búin að ná okkur af augnsýkingu og getum nú gengið kokhraust á meðal fólks. Það var ekki lítill spenningur í minni þegar við fórum í húsdýragarðinn og kíktum á dýrin.

Matthildur ákallar mömmu sína og biður um að fá kött á heimilið. (Mamman var á spítalanum en pabbinn kemur skilaboðunum áleiðis.)


Það er nokkuð ljóst að ég hef ekki smitað hana af hænufóbíugenunum mínum. Hún hljóp inn í miðja hænsnaþvöguna og reyndi að kyssa þær allar. Ég hélt mig í hæfilegri fjarlægð og þakkaði guði fyrir góða aðdráttarlinsu á myndavélinni.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ertu hræddur við hænsnagrey?? þú kemur sífellt á óvart Óli

Kv Helga Dröfn :)

10:06 f.h.  
Blogger Óli said...

Hænsni eru ekki vinir mínir. Hvernig fannst ykkur svo leikritið'

Óli

11:02 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

No comment :)

Helga Dröfn

10:18 f.h.  
Blogger Unknown said...

ray ban glasses
ugg outlet
ugg australia
basketball shoes
uggs outlet
mbt outlet
fitflops
nike air max pas cher
polo ralph lauren
air jordan pas cher
201612.23wengdongdong

6:54 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home